Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum á RÚV 2 í vetur



Umsjón með þáttunum í vetur hefur Hulda G. Geirsdóttir dagskrárgerðarkona og alþjóðadómari í hestaíþróttum og mun hún fá til liðs við sig ýmsa fagmenn innan hestamennskunnar sem aðstoða munu við lýsingar frá mótunum. Sýnt verður frá öllum greinum á RÚV 2, hliðarrás RÚV, í opinni dagskrá. Útsendingin á fimmtudaginn hefst kl. 19. Nánari upplýsingar um deildina og dagskrá hennar er að finna á vefsíðunni www.meistaradeild.is.