Begin typing your search above and press return to search. Press Esc to cancel.

Archiv


Read more

LM: Eldjárn frá Skipaskaga efsti 4 vetra hesturinn

Eldjárn frá Skipaskaga hélt efsta sætinu á yfirliti í flokki 4 vetra stóðhesta sem fram fór í gær og vann því flokkinn með 8.44 í aðaleinkunn. Næstur á eftir kom glæsi klárhesturinn Fenrir frá Feti með 8.37. Hækkaði hann á yfirliti í 9.5 fyrir vilja og geðslag og er því nú með 9.5 fyrir bæði fegurð í reið og vilja og geðslag. Þriðji var Viðar frá Skör sem hlaut 8.29 í aðaleinkunn.


Read more

LM: Askja frá Efstu-Grund hæsta 4 vetra hryssan

Skýsdóttirin Askja frá Efstu-Grund var hástökkvari 4 vetra flokks hryssna í gær þegar hún hækkaði sig um rúmar 30 kommur á yfirliti og skaut sér í 1. sætið með 8.38 í aðaleinkunn og 8.55 fyrir hæfileika. Sigurrós frá Stuðlum, sem var efst fyrir yfirlit, endaði í 2. sæti með 8.31 í aðaleinkunn og 8.37 fyrir hæfileika. Þriðja var Sýn frá Hólum með 8.30 í aðaleinkunn og 8.14 fyrir hæfileika.

Cookie Consent mit Real Cookie Banner